Fara í innihald

Shandong

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Landakort sem sýnir legu Shandong héraðs í Austur- Kína.
Kort af legu Shandong héraðs  í Austur- Kína.

Shandong (kínverska: 山东; rómönskun: Shāndōng) er standhérað í Austur- Kína sem liggur við Gulahaf til móts við Kóreuskaga. Shandong er næstfjölmennasta hérað Kína. Þar bjuggu tæplega 99.5 milljónir íbúa árið 2016.

Nafnið Shandong, sem þýðir „austur af fjöllum“, var fyrst notað opinberlega á Jin-ættarveldinu á 12. öld. Héraðið samanstendur af tveimur aðskildum hlutum. Annars vegar er landsvæði inni í landi sem afmarkast af héruðunum í Hebei í norðri og vestri, Henan í suðvestri og Anhui og Jiangsu í suðri. Hins vegar er Shandong-skagi, sem nær um 320 kílómetra sjávarmegin frá ársléttum Wei og